10október
Sértilbođ í mellunni og af hermannafrökkum hjá Skara
Já ég er að missa mig í blogginu eins og þið sjáið. Maður tekur svona skorpur, þar sem maður er stundum mjög lélegur í blogginu og aðrar þar sem maðir eru ekki eins lélegur.
Ok á föstudaginn man ég ekki alveg hvað ég gerði..man allavega eftir einum South Park þætti sem við Veigar horfðum á. Nokkuð fyndinn þáttur. man líka eftir að við teipuðum glugga sem Veigar braut fyrir nokkru.
Á Laugardaginn fór ég í óvissuferð með meistaraflokkinum suður í mývatnssveitina.
Hefði nú fekar viljað fara á Tjörnesið enda miklu fegurri staður en þetta var nú óvissuferð. Fórum klukkan tvö. Komum svo nokkru seinna í mývatnssveitina þar sem við fórum í leiki og bolta inní höllinni þar.
Svo fórum við í jarðböðin!
Það var frekar lélegt því það var svo mikið rok og frekar kalt þarna uppfrá að vatnið var ískalt á sumum stöðum.
Þannig við fórum bara í gufuna! hann var alls ekki köld, frekar heit ef eitthvað er..
Svo keyrðum við heim og fórum út hjá verkalýðsskrifstofunni. Höfðum þá smá tíma til að fara heim, ég notaði tækifærið og skipti um sokka því ég gleymdi að taka með auka
Allavega, maður fór heim, skipti um sokka og setti á sig glæsilegt bindi og fór uppí sal og boraði þar pizzu. Fórum svo í leiki og eitthvað skemmtilegt. Sumir voru alveg að missa sig í bjórnum eins og hann Dóri frændi..
Svo fór maður bara heim og eitthvað, fékk sér smá að borða og fór svo út aftur að hitta fólkið úti. Það var stuð bara!
Á Sunnudeginum tók maður sér góðan tíma í að lesa 150 bls í Korku!
Vá það var leiðinlegt
Maður gerði eiginlega ekki mikið meira þann dag..
Jú maður fór klukkan fjögur í fótbolta með einhverjum gaurum. Það var fínt að fara í sinn fyrsta alvörfótbolta síðan í júlí..
Fór í sund áðan! glæsilegt hjá mér! hitti Söru og Bjögga..Bjöggi var ferskur eins og alltaf.






